Samskipti: fræðsla og ráðgjöf
 
Samskipti
  Fræðsla og ráðgjöf s.f. var stofnað 1985 af Wilhelm Norðfjörð og Hugo Þórissyni sálfræðingum.
Markmið fyrirtækisins er að standa að fræðslu og námskeiðahaldi um mannleg samskipti.

Eigendur fyrirtækisins sóttu þjálfunarnámskeið í hugmyndum dr. Thomasar Gordons sálfræðings
til Bandaríkjanna árið 1985 og hlutu þjálfun í hugmyndum hans. Í framhaldi af því fékk fyrirtækið
umboð fyrir námskeið dr. Gordons á Íslandi.

Dr. Thomas Gordon kom í heimsókn til Íslands haustið 1987. Hélt hann þá 2ja daga námskeið um
samskipti stjórnenda og starfsmanna ("leaders effectiveness training") fyrir helstu stjórnendur SÍS,
fyrirlestur fyrir kennara við Kennaraháskóla Íslands og mjög fjölmennan fyrirlestur fyrir foreldra í
Bústaðakirkju.

Á undanförnum árum hefur samskipti:fræðsla og ráðgjöf staðið fyrir fjölda námskeiða fyrir ýmsa aðila.
Má nefna námskeið fyrir strætisvagnastjóra "samskipti við farþega" en þau hafa verið haldin reglulega
frá 1988. Haldin hafa samskiptanámskeið fyrir stöðuverði í samráði við Bílastæðasjóð, námskeið fyrir
foreldra um samskipti við börn, námskeið fyrir kennara um samskipti í skólastofunnu, heilbrigðisstéttir
um samskipti við sjúka m.m.. Námskeið um samskipti á vinnustað hafa verið haldin í samráði við
margvísleg fyriræki og stofnanir. Má þar nefna Hans Petersen, starfsfólk hjá Hagsýslu Ríkisins, Hard Rock,
A&P lögmönnum, auk fjölda annarra.

 
 Hugo Þórisson sálfræðingur
 Wilhelm Norðfjörð sálfræðingur
 
 
Tilbaka