Hugo
Þórisson sálfræðingur. |
| |
Hugo Þórisson er fæddur í
Reykjavík 25. maí 1949. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð 1970. Hugo las eitt ár í félagsfræði við
Háskóla Íslands
að loknu stúdentsprófi en hélt síðan til Noregs þar sem hann las sálfræði
1971-72 en
þá um haustið hélt hann til Árósa til frekari náms í sálarfræði. Lauk
hann þar
embættisprófi í sálfræði (cand. psych) veturinn 1979.
Hugo starfaði fyrst innan grunnskóla á sálfræðideild Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur
veturinn 1979. 1991 hóf hann störf hjá Félagsmálstofnun Reykjavíkur og
starfaði
þar sem yfirsálfræðingur að málefnum unglinga til ársins 1996 er sérsök
þjónusta við
unglinga innan FR var lögð niður. Frá árinu 1996 hefur Hugo starfað sjálfstætt
að
sálfræðistörfum. M.a. hefur Hugo starfað að sálfræðistörfum fyrir Skólaskrifstofu
Austurlands og sinnt þá málefnum barna og unglinga á því svæði.
Síðan 1998 hefur hann starfað að sálfræðistörfum hjá Grindavíkurbæ og
frá ársbyrjun
1999 verið í hlutastarfi fyrir Skólaskrifstofu Kópavogs við störf innan
grunnskóla.
1985 stofnaði Hugo fyrirtækið Samskipti: fræðsla og ráðgjöf ásamt
Wilhelm Norðfjörð sálfræðingi. Þeir eru báðir þjálfaðir leiðbeinendur
í aðferðum
Dr. Thomasar Gordons (gordontraining.com)
og hafa umboð fyrir námskeið hans hér á landi.
Á sama tíma hefur Hugo rekið eigin sálfræðistofu, haldið fjölmörg námskeið
fyrir foreldra,
fagfólk innan uppeldis- og menntasviðs, verið eftirsóttur fyrirlesari
um uppeldismál
og málefni er varða samskipti fólks, ekki síst á vinnustöðum. Á síðari
árum hefur
Hugo í auknum mæli haldið námskeið um bætt samskipti á vinnustöðum
og m.a. haldið námskeið á þessu ári fyrir starfsmenn Íslenska Jánblendifélagsins,
Búnaðarbanka Íslands, Fjölbrautarskóla Suðurnesja, Miðlun, m.m..
Hugo er kvæntur Ragnheiði Hermannsdóttur kennara og eiga þau fjögur börn
og eitt barnabarn. |
|
|
|
Hafðu þá samband við Hugo
Þórisson. |